Lífið

150 lög bárust í Eurovision

Kynnir keppnina Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir kynnir Eurovision-keppnina eins og undanfarin þrjú ár. 150 lög bárust í keppnina í ár.
Kynnir keppnina Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir kynnir Eurovision-keppnina eins og undanfarin þrjú ár. 150 lög bárust í keppnina í ár.
„Þetta er svipaður fjöldi og hefur verið undanfarin ár,“ segir Elísabet Linda Þórðardóttir, dagskrárgerðarmaður hjá Ríkissjónvarpinu. Í kringum 150 lög bárust í Söngvakeppni Sjónvarpsins, Eurovision, en umsóknarfrestur rann út á mánudag.

Þetta eru ögn færri lög en bárust í fyrra þegar 174 lög bárust og nær ekki toppnum 2009 þegar yfir 200 lög reyndu að komast í aðalkeppnina. Elísabet Linda segir að nú taki við vinna hjá fimm til sex manna dómnefnd sem fari yfir öll lögin og er reiknað með því að þeirri vinnu ljúki í byrjun næstu viku en nöfn dómnefndarmeðlima eru ekki gefin upp. „Endanlegur listi ætti því að liggja fyrir eftir hálfan mánuð eða þrjár vikur.“

Að sögn Sigrúnar Stefánsdóttur, dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins, hefur ekki verið tekin ákvörðun um hversu mörg lög munu keppa, það sé verið að teikna keppnina upp um þessar mundir en eins og Fréttablaðið hefur greint frá verða engar undankeppnir í ár heldur fara lögin sjálfkrafa á sjálft úrslitakvöldið.

Búið er að ákveða að Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir verði kynnir keppninnar eins og undanfarin þrjú ár en Sigrún hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort einhver verði henni til halds og trausts.

„Ég missti auðvitað Guðmund Gunnarsson, sem var miður, því mér fannst hann standa sig vel og ég hefði viljað hafa hann áfram,“ segir Sigrún sem þarf einnig að fylla skarð Páls Óskars Hjálmtýssonar en hann ákvað að segja skilið við Eurovision-þáttinn Alla leið.- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.