Lífið

Stöðugt stuð í bíóhúsum borgarinnar

Fjölbreytt úrval Kvikmyndahúsagestir geta farið í bíó um helgina og séð íslenska mynd, teiknimynd, spænska mynd og Woody Allen-mynd sem gerist í París með forsetafrúnni Cörlu Bruni í litlu hlutverki.
Fjölbreytt úrval Kvikmyndahúsagestir geta farið í bíó um helgina og séð íslenska mynd, teiknimynd, spænska mynd og Woody Allen-mynd sem gerist í París með forsetafrúnni Cörlu Bruni í litlu hlutverki.
Það ríkir mikil frumsýningargleði í kvikmyndahúsum um þessar mundir og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Eins og kemur fram hér til hliðar verða tvær íslenskar kvikmyndir frumsýndar en auk þess verða myndir eftir Almodóvar og Woody Allen teknar til sýninga.

Í kvikmyndinni La piel que habito endurnýja Spánverjarnir Almodóvar og Antonio Banderas gjöfult samstarf sitt, en Almodóvar gerði Banderas að stórstjörnu á sínum tíma og opnaði honum leið inn í Ameríku. Nú snýr Banderas aftur á fornar slóðir – enda ferillinn í Hollywood í sögulegu lágmarki – og fer á kostum í hlutverki sjúks lýtalæknis. Annar mikill meistari frumsýnir mynd sína í Bíó Paradís, en Woody Allen þykir vera í góðu formi í kvikmyndinni Midnight in Paris. Allen hefur verið að fást við evrópskar borgir í síðustu kvikmyndum sínum, hefur heimsótt bæði London og Barcelona en eins og nafnið gefur til kynna er París málið núna. Með aðalhlutverkin í myndinni fara þau Owen Wilson, Rachel McAdams og Kathy Bates.

Góðkunningi barnanna, Bangsímon, verður frumsýndur í Sambíóunum um helgina. Boðið verður upp á sérstakt barnabíó um helgina en myndin verður sýnd með lægri hljóðstyrk og þá verður ljóstíra í salnum. Sambíóin frumsýna einnig dansmyndina Footloose, sem er endurgerð á samnefndri mynd frá árinu 1984 með Kevin Bacon í aðalhlutverki.- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.