Lífið

Lifandi uppvakningur

Fyrirsætan Rick Genest fer með aðalhlutverkið í þrívíddarsýningu Formichetti, en hann vekur athygli þar sem líkami hans er þakinn húðflúrum. Húðflúrin láta hann líta út sem lifandi uppvakning, en áður en hann var uppgötvaður af Formichetti var Genest meðlimur í sirkus þar sem hann gerði ýmiss konar áhættuatriði. Genest lék meðal annars stór hlutverk í myndbandi Lady Gaga, „Born This Way“. Ellen og Tobbi fengu að hitta kappann í New York og tóku við hann viðtal. Ellen segir hann mjög viðkunnanlegan. „Ég var mjög stressuð að hitta hann fyrst, þar sem mér finnst hann frekar hrikalega útlítandi, en hann var algjör ljúflingur og fínn gaur.“





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.