Lífið

Eiga von á barni saman

Barn á leiðinni Bruce Willis og eignkona hans, Emma Heming, eiga von á barni saman.nordicphotos/getty
Barn á leiðinni Bruce Willis og eignkona hans, Emma Heming, eiga von á barni saman.nordicphotos/getty
Bruce Willis og eiginkona hans, Emma Heming, eiga von á barni saman. Willis er þekktastur fyrir leik sinn í Die Hard-kvikmyndunum og á fyrir þrjár dætur með leikkonunni Demi Moore.

Tímaritið Life & Style hefur eftir heimildarmanni að parið sé himinlifandi með fréttirnar.

„Það er farið að sjást á Emmu. Þau gætu ekki verið hamingjusamari,“ sagði heimildarmaðurinn. Heming er ættuð frá Möltu og starfar sem fyrirsæta. Hún og Willis gengu í hið heilaga í mars árið 2009.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.