Lífið

Ungar stúlkur herja á Hollywood

Elle Fanning Þessi 13 ára leikkona er yngri systir leikkonunnar Dakota Fanning. Hún kom fyrst fram á sjónarsviðið aðeins tveggja ára gömul þegar hún lék í myndinni I Am Sam en síðan þá hefur hún meðal annars leikið í mynd Sofiu Coppola, Somewhere. Næst verður hægt að sjá Elle Fanning í kvikmynd Camerons Crowe, We Bought a Zoo, sem verður frumsýnd síðar á þessu ári. 
Nordicphotos/getty
Elle Fanning Þessi 13 ára leikkona er yngri systir leikkonunnar Dakota Fanning. Hún kom fyrst fram á sjónarsviðið aðeins tveggja ára gömul þegar hún lék í myndinni I Am Sam en síðan þá hefur hún meðal annars leikið í mynd Sofiu Coppola, Somewhere. Næst verður hægt að sjá Elle Fanning í kvikmynd Camerons Crowe, We Bought a Zoo, sem verður frumsýnd síðar á þessu ári. Nordicphotos/getty
Ungar leikkonur herja nú á rauðu dreglana í Hollywood og vekja verðskuldaða athygli fyrir fágaðan fatastíl. Tískuritin skiptast á að hampa þeim Elizabeth Olsen, Elle Fanning og Chloë Moretz, sem einnig fá góða dóma fyrir frammistöðu sína á hvíta tjaldinu.

Þrátt fyrir ungan aldur, en Elle Fanning er einungis 13 ára gömul, eru þær í náðinni hjá mörgum af fremstu hönnuðum heims sem keppast um að fá að klæða þær við hin ýmsu tilefni. Það er greinilegt að nýjar stjörnur eru að fæðast í Hollywood.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.