Lífið

Tinni fyrsta hlutverk Þorsteins

Einlægur tinnamaður Þorsteinn Bachmann var rödd Tinna í þeim 39 teiknimyndum sem gerðar voru eftir bókum Hergé. Hann ætlar að sjá nýju Spielberg-myndina um blaðamanninn snjalla.Fréttablaðið/Stefán
Einlægur tinnamaður Þorsteinn Bachmann var rödd Tinna í þeim 39 teiknimyndum sem gerðar voru eftir bókum Hergé. Hann ætlar að sjá nýju Spielberg-myndina um blaðamanninn snjalla.Fréttablaðið/Stefán
Kvikmynd Stevens Spielberg, Ævintýri Tinna, verður frumsýnd um helgina. Einn Íslendingur þekkir sennilega hlutverk hins bráðsnjalla Tinna best en það er Þorsteinn Bachmann leikari.

Þorsteinn talaði inn á allar 39 teiknimyndirnar sem gerðar voru eftir sögum Hergé og voru fyrst sýndar fyrir tuttugu árum. Með Þorsteini í liði var Felix Bergsson en Þorsteinn var hins vegar lykilmaður, var bæði Tinni og Kolbeinn kafteinn. „Upprunalega stóð til að ég myndi gera þetta einn en ég fékk Felix í lið með mér og við skiptum meðal annars Sköftunum á milli okkar.“

Þorsteinn rifjar upp að sennilega hafi Tinni verið fyrsta stóra hlutverkið sitt sem atvinnuleikari, hann var nýútskrifaður úr Leiklistarskólanum þegar yfirþýðandi á Sjónvarpinu hafði samband og spurði hvort hann væri ekki tilkippilegur í þetta.

„Tinni er slíkur helgidómur í mínu barnshjarta að maður vildi gera vel og þetta varð því mjög vönduð talsetning. Við Felix rifumst mjög oft við tæknimanninn, vildum fá að gera hlutina aftur og gáfum okkur góðan tíma í þetta.“

Þorsteinn er sjálfur mikill Tinnamaður og beið eftir bókunum um blaðamanninn snjalla á sínum yngri árum. „Ég spurði mömmu einu sinni hvað myndi gerast ef Tinni myndi taka upp á því að deyja, hann gat alltaf bjargað öllu,“ segir Þorsteinn, sem reiknar fastlega með því að fara að sjá nýju Tinnamyndina þegar tækifærið gefst.

„Ég kemst ekki á föstudaginn, er að fara að sýna Hreinsun, en ég ætla að fara.“- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.