Lífið

Hugsar líkt og stelpa

stelpulegur Ryan Gosling segist hugsa meira eins og stelpa en strákur.nordicphotos/getty
stelpulegur Ryan Gosling segist hugsa meira eins og stelpa en strákur.nordicphotos/getty
Leikarinn Ryan Goslin er talinn vera meðal þeirra efnilegustu í Hollywood í dag. Hann segist ekki hafa átt marga vini í æsku og hugsi meira eins og kona en karlmaður.

„Ég hugsa eins og stelpa. Það er kannski ekki skrítið því ég var alinn upp af móður minni og systur og ég gæti líklega ekki hugsað öðruvísi þótt ég vildi. Þar að auki var systir mín minn besti vinur og fyrirmynd og þar sem ég fékk kennslu heima átti ég fáa aðra vini. Ég æfði líka ballett þegar ég var yngri og var umkringdur stelpum þar líka. Þetta hlýtur að hafa haft áhrif á mig og þann mann sem ég hef að geyma,“ sagði leikarinn í viðtali við The Independent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.