Lífið

Er ekki ólétt

Jennifer Aniston segist ekki vera barnshafandi heldur bætti hún á sig eftir að hún hætti að reykja.
Jennifer Aniston segist ekki vera barnshafandi heldur bætti hún á sig eftir að hún hætti að reykja. Nordiphotos/getty
Leikkonan Jennifer Aniston blæs á allar sögusagnir í viðtali við nýjasta tölublað tímaritsins Hello!. Orðrómur um væntanlegt barn og brúðkaup hafa verið í kreiki í dágóðan tíma og hlutu byr undir báða vængi þegar Aniston tók saman við leikarann Justin Theroux.

„Ég hef þegar verið gift einu sinni og veit ekki hvort ég kæri mig um að giftast aftur. Ég get staðfest að ég hef engin plön um að giftast núna, skiljið þið það?," segir Aniston ákveðin við tímaritið Hello! og lætur ekki þar við sitja. „Við eigum heldur ekki von á barni. Ég hætti að reykja og bætti á mig nokkrum kílóum í kjölfarið."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.