Fimmstjörnu þjónusta 1. nóvember 2011 11:00 Friðrik Helgi Friðriksson, deildarstjóri á Kletthálsi, og Aðalgeir Gíslason, deildarstjóri á verkstæðinu í Auðbrekku, bjóða upp á faglega þjónustu sem byggir á áralangri reynslu. Mynd/gva
Toyota leggur áherslu á faglegar viðgerðir. Toyota rekur tvö réttingaverkstæði, annars vegar hér í Auðbrekku 27 og hins vegar á Kletthálsi 9. Við önnumst alla tjónaskoðun og viðgerðir fyrir öll tryggingafélögin," útskýrir Aðalgeir Gíslason, deildarstjóri á verkstæði Toyota í Auðbrekku. Bæði verkstæðin vinna eftir svokölluðu Cabas-tjónamatskerfi og eru með gæðavottun Bílgreinasambandsins. Þá fá þau bæði fimm stjörnur frá tryggingafélaginu Sjóvá. „Við uppfyllum BGS gæðastaðal númer 3.0:2011 fyrir „þjónustu málningar- og réttingaverkstæða". Það þýðir að við bjóðum ávallt úrvalsþjónustu og gott viðmót, könnum bótaskyldu og rétt tjónþola til bílaleigubíls og framkvæmum faglegar viðgerðir," segir Aðalgeir. „Við erum enn fremur með sérfræðinga á öllum sviðum og háan starfsaldur, en hér í Auðbrekku hafa menn unnið allt frá 7 árum og upp í 16 ár og búa því yfir sérþekkingu sem ekki er á allra færi," bætir hann við og Friðrik Helgi Friðriksson, deildarstjóri á verkstæðinu á Kletthálsi, tekur undir það. „Á Kletthálsi eru einnig allir lærðir og gaman að segja frá því að hjá okkur vinnur fyrsta og eina konan með sveinspróf í bifreiðasmíði, Anna Kristín Guðnadóttir," segir Friðrik. Sjálfur hefur hann unnið hjá fyrirtækinu í 21 ár, fyrst í Auðbrekku áður en Toyota keypti verkstæðið á Kletthálsi fyrir 5 árum. „Starfsemin gengur út á það sama á báðum verkstæðum en á Kletthálsi erum við í stærra húsnæði. Þar vinna 11 manns og við sinnum frekar stærri verkefnum. Við sérhæfum okkur í Toyota-bifreiðum en tökum á móti öllum bílum. Megnið af þeim verkum sem fara í gegn hjá okkur er tryggingatjón," segir Friðrik. „Fólk getur pantað tíma gegnum þjónustuverið hjá Toyota eða haft beint samband við verkstæðin," útskýrir Aðalgeir. „Við byrjum á að gera tjónamat áður en viðgerð hefst og viðskiptavinurinn kynnir sér bótarétt sinn. Yfirleitt tekur ferlið 10 daga hjá tryggingafélögunum en biðtíminn hjá okkur er ekki langur, ef bílarnir eru mikið skemmdir reynum við að taka þá sem allra fyrst í viðgerð," segir Aðalgeir. „Varahlutir eru ávallt til hjá okkur og bílaleigubílar eru til staðar fyrir þá sem hafa rétt á því en einnig erum við með þjónustubíl sem keyrir viðskiptavini heim eða í vinnuna og sækir þá svo aftur þegar bíllinn er tilbúinn." Á heimasíðunni toyotakopavogi.is er að finna frekari upplýsingar. Tímapöntun er í síma 570 5000.
Sérblöð Mest lesið Gervigreind á jólaísnum hafi komið á óvart Viðskipti innlent Kostnaður við tónleika útskýri hátt miðaverð Neytendur Veiðigjald á þorski nánast tvöfaldað milli ára Viðskipti innlent Jólabækurnar nær alltaf ódýrastar í Bónus Neytendur Google birtir lista yfir vinsælustu leitarorðin Viðskipti erlent Leggur til þrjár aðgerðir á ögurstundu fjölmiðla Viðskipti innlent ESB sektar samfélagsmiðil Musk um milljarða Viðskipti erlent Opnar útibú Forréttabarsins á kunnuglegum stað Viðskipti innlent Ákvörðun um fjárhæð veiðigjalds seinni á ferðinni en venjulega Viðskipti innlent Stuðla að góðu orðspori íslenskrar ferðaþjónustu Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Gatnamótin opin á ný við Fjarðarkaup Yfir milljón dagskrárliðir sóttir vikulega Greiðsluáskorun Jólagjöf ársins 2025 veltir sigurvegara síðustu tveggja ára úr sessi Ertu þremur mínútum frá draumastarfinu? Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Sjá meira