Neyðarkall frá neytanda Atli Fannar Bjarkason skrifar 5. nóvember 2011 06:00 Yarisinn skrikaði til í hausthálkunni þar sem ég lagði fyrir utan Ríkið á fimmtudag. Sumardekkin eru ennþá undir, en ég hef litlar áhyggjur. Þetta er enginn vetur núorðið. Í þann mund sem ég ætla að vippa mér innfyrir bíður mín fyrirsát: rauðklæddur björgunarsveitarmaður með hjálm á höfði. Rétt eins og á sama tíma í fyrra reynir hann að pranga inn á mig Neyðarkalli. Ég fer undan í flæmingi en segi honum að lokum að ég sé búinn að kaupa. (Í hitt í fyrra en hvít lygi hefur aldrei skaðað neinn). 1-0 fyrir mér. En Það er eins og við manninn mælt og síðustu dagar hafa verið nákvæmlega eins. Björgunarsveitarmenn hafa ekki látið mig í friði frá því að tilkynningin um að mánaðarlaunin hefðu verið lögð inn á reikninginn barst í símann minn. Hvert sem ég fer bíða þessir sjálfskipuðu riddarar lífsbjargarinnar eins og forframaðar barnapíur og reyna að pranga inn á mig varningi sem er lítið annað en ódýrar lyklakippur. Ég gæti keypt lyklakippu sem rýmir helmingi fleiri lykla á helmingi lægra verði í næstu lágvöruverðsverslun. Björgunarsveitarmenn virðast ófærir um að skilja þessa röksemdafærslu, sama hvað ég fer oft með sömu ræðuna. Stærð Neyðarkallsins er umræða útaf fyrir sig. Ég hef reyndar ekki kynnt mér kallinn sérstaklega í ár, en ég er viss um að hann er minni en þeir sem hafa verið seldir undanfarin ár. Við erum að fá sífellt minna fyrir peninginn. Hversu lengi á að níðast á neytendum með svikinni vöru? Hann þarf að minnsta kosti að vera á stærð við löngutöng fullorðins manns til að þess að geta fallist undir skilgreininguna sem lyklakippa samkvæmt viðurkenndum ISO-staðli. Í ár segi ég nei. Ég er hættur að verða við ósanngjörnum og ósvífnum kröfum björgunarsveitamanna. Neyðarkallinn kostar 1.500 krónur og í ár fara þær í bjórsjóðinn. Ég þarf líka að eiga nóg fyrir bensíni. Í kvöld reima ég nefnilega á mig strigaskóna, renni upp vindjakkanum úr Rúmfatalagernum (sem er svo gott sem vatnsheldur), slekk á símanum, set bjórkassann í skottið á Yarisnum og tek stefnuna upp á heiðar. Ég er farinn á rjúpu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Atli Fannar Bjarkason Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun