Lífið

Barnalán í Efstaleiti

Eddan 2010, Háskólabíó
Eddan 2010, Háskólabíó
Fréttaparið Þóra Arnórsdóttir og Svavar Halldórsson á nú von á sínu þriðja barni. Samstarfsfólk þeirra á Ríkisútvarpinu fékk að heyra tíðindin í síðustu viku og samfagnaði þeim að vonum innilega. Svavar stendur í ströngu þessa dagana, var fyrir skemmstu sýknaður af meiðyrðum í garð Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og þarf enn að verjast slíkri málsókn frá Pálma Haraldssyni.

Barnið er væntanlegt í heiminn í vor, en það er sem áður segir þriðja barn Þóru og Svavars, sem eiga fyrir hinn rétt tæplega sex ára Halldór Narfa og Nínu Sólveigu, þriggja ára. Svavar á þar að auki þrjár dætur frá fyrra hjónabandi. - hdm/sh






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.