Lífið

Samningur í Þýskalandi

lockerbie Hljómsveitin hefur samið við þýskt útgáfufyrirtæki.
lockerbie Hljómsveitin hefur samið við þýskt útgáfufyrirtæki.
Lockerbie hefur gert samning við þýska fyrirtækið Käpitan Platte um útgáfu plötunnar Ólgusjór í Þýskalandi, Austurríki, Sviss, Lúxemborg og Liechtenstein.

Platan kom út á Íslandi í sumar og hefur einnig komið út hjá Rallye Label í Japan. Käpitan Platte hefur einnig á sínum snærum sænsku síðrokksveitirnar EF og Immanu El. Fyrirtækið heyrði fyrst í Lockerbie eftir að hún var valin hljómsveit vikunnar og hafði verið í viðtali í þættinum Breitband hjá þýska ríkisútvarpinu. Sveitin spilar næst á Faktorý 30. nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.