Lífið

Herja á neftóbaksmarkað

Ræðst á risana Sverrir Gunnarsson hjá Íslenska tóbaksfélaginu hefur hafið framleiðslu og innflutning á nýju neftóbaki sem nefnist Skuggi. Hann ætlar að veita risunum á tóbaksmarkaði verðuga samkeppni.Fréttablaðið/Daníel
Ræðst á risana Sverrir Gunnarsson hjá Íslenska tóbaksfélaginu hefur hafið framleiðslu og innflutning á nýju neftóbaki sem nefnist Skuggi. Hann ætlar að veita risunum á tóbaksmarkaði verðuga samkeppni.Fréttablaðið/Daníel
Íslenska tóbaksfélagið hefur hafið framleiðslu og innflutning á neftóbaki. Framleiðslan fer fram hjá V2 Tobacco í Silkiborg í Danmörku og hefur tóbakið hlotið nafnið Skuggi.

Sverrir Gunnarsson, sem stofnaði félagið í samstarfi við föður sinn, segir takmarkið vera að flytja inn fleiri tegundir tóbaks, meðal annars vafningstóbak, sígarettur og vindla. „Við erum enn að bíða eftir formlegu leyfi frá ÁTVR en ég hef enga trú á öðru en að það komi innan skamms. Ríkið má ekki mismuna fyrirtækjum sem það er sjálft í samkeppni við."

Sverrir segir að þeir ætli koma af fullum krafti inn í samkeppnina á íslenska tóbaksmarkaðinum. Tóbakið hefur verið til sölu í söluturninum Drekanum að undanförnu og hefur salan gengið vonum framar, allar tegundir séu uppseldar nema ein. „Íslendingar nota í kringum hundrað kíló af neftóbaki á dag," segir Sverrir.

Eins og kom fram í fréttum Stöðvar 2 í mars síðastliðnum hefur neysla á íslensku neftóbaki aukist um fimmtíu prósent. Þar að auki hefur heildsalinn Rolf Johansen hafið framleiðslu og innflutningi á neftóbakinu Lundi. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hyggst Íslensk-ameríska einnig hefja innflutning á neftóbaki en framkvæmdastjóri markaðs-og sölusviðs, Árni Ingvarsson, vildi hvorki játa né neita því í samtali við Fréttablaðið. - fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.