"Besta Fanfestið til þessa" 26. mars 2012 15:22 „
Þetta var besta Fanfestið til þessa," segir Oddur Örn Halldórsson, Fanfest stjórnandi og viðburðarstjóri CCP. Rúmlega þúsund EVE Online spilarar og tölvuleikjaaðdáendur heimsóttu Hörpuna um helgina og áttu þar góða stund saman. Oddur segir að gríðarleg stemning hafi verið í Hörpunni um helgina. „Það er einna helst að þakka Hörpunni sjálfri," segir Oddur. „Spilararnir töluðu um að húsið væri í raun eins og geimskip úr EVE Online." Hátíðinni lauk síðan á laugardagskvöld en þá stigu hljómsveitirnar Gus Gus og Ham á stokk í Hörpunni. „Það voru um 2.500 manns á tónleikunum," segir Oddur. „Á síðasta ári héldum við stærsta partý Íslandssögunnar en við ákváðum að breyta til í ár. Það var aðeins minna af fólki en stemningin var samt sem áður góð. Þetta var mun meira partý heldur en tónleikar." Á hátíðinni kynnti CCP þær nýjungar sem fyrirtækið mun ráðast í á komandi mánuðum og árum. Oddur segir að spilararnir hafi verið gríðarlega ánægðir með þá stefnu sem CCP hafi myndað. Þá var tölvuleikurinn DUST 514 heimsfrumsýndur á hátíðinni og var hann því í fyrirrúmi. „Í sannleika sagt voru spilararnir fullir efasemda í garð DUST 514," segir Oddur. „Okkur tókst þó að sannfæra þá og voru flestir afar ánægðir eftir að hafa fengið að spila leikinn." DUST 514 markar tímamót í sögu leikjaiðnaðarins. Leikurinn verður aðeins fáanlegur á Playstation 3 leikjatölvunni og geta allir spilarar eignast leikinn sér að kostnaðarlausu. Þá munu spilarar á PlayStation 3 og PC geta unnið saman og er þetta í fyrsta sinn sem slíkt er reynt. En þessi byltingarkenndi tölvuleikur var þó ekki eina nýjungin sem kynnt var á hátíðinni. CCP opinberaði einnig næstu uppfærslu fyrir EVE Online en hún nefnist Inferno. Þá opinberaði CCP einnig myndskeið úr tölvuleiknum World of Darkness sem fyrirtækið hefur þróað síðustu ár. Hægt er að sjá myndskeið sem CCP lét vinna fyrir Fanfest hátíðina hér fyrir ofan. Í því er varpað ljósi á hvernig DUST 514 kemur til með hafa áhrif á EVE Online sýndarheiminn.
Leikjavísir Tengdar fréttir Fanfest vekur athygli víða um heim Mikið hefur verið dýrðir í Hörpunni frá því að Fanfest hátíðin hófst þar í gær. Rúmlega 1.500 spilarar og aðdáendur EVE Online tölvuleiksins hafa heimsótt tónlistarhúsið. Þá hafa þúsundir fylgst með fyrirlestrum tengdum EVE Online og DUST 514 í gegnum netið. 23. mars 2012 13:24 Fanfest: Þjóðhátíð tölvuleikjaspilara Tölvuleikjaframleiðandinn CCP kynnti nú síðdegis nýjan tölvuleik fyrir Play Station leikjatölvur. Leikurinn hefur verið í þróun í fjögur ár og markar hann tímamót í tölvuleikjaiðnaði heimsins segir framkvæmdastjóri fyrirtækisins. 22. mars 2012 20:30 Lego framleiðir geimskip byggt á tölvuleiknum EVE "Það er verið að fljúga inn módeli sem verður til sýnis á Fanfest,“ segir Eldar Ástþórsson, verkefnastjóri markaðsdeildar hjá CCP. 21. mars 2012 09:00 Árshátíð CCP - DUST 514 heimsfrumsýndur "Við erum beinlínis að taka yfir Hörpuna," segir Eldar Ástþórsson, verkefnastjóri markaðsdeildar CCP. Fanfest hátíðin hófst í dag en þar mun tölvuleikjaframleiðandinn CCP heimsfrumsýna nýjustu afurð sína - DUST 514. 22. mars 2012 16:25 CCP með fyrirlestur í Hörpu Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP stendur fyrir opnum fyrirlestri og kynningu á starfsemi fyrirtækisins í Hörpunni á morgun. Rætt verður um fjölspilunarleikinn EVE Online og EVE Fanfest hátíðinni sem haldin verður í tónlistarhúsinu um helgina. 21. mars 2012 15:45 Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign Lífið Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Lífið Fleiri fréttir Árlegt „Fifa“mót GameTíví GameTíví: Heldur för sinni um Night City áfram God of War Ragnarök á PC: Kratos er enn klikkaður Stiklusúpa: Allt það helsta frá kynningu Sony í gær GameTíví: Íslendingaslagur í Warzone Space Marine 2: Fyrirtaks skemmtun af gamla skólanum Ólympíukvöld hjá GameTíví GameTíví: Plortedo spilar sig gegnum Night City CCP kynnir nýjan leik í söguheimi EVE Online GameTíví: Skúrkur í skýjunum GameTíví: Stefna á þrjá sigra í Warzone Astro Bot: Astro stígur ekki feilspor í nánast fullkomnum leik Star Wars heimurinn skoðaður í GameTíví Star Wars Outlaws: Ekki eins hræðilegur og internetið segir Endurgreiða þeim fáu sem keyptu Concord GameTíví: Snúa hlekkjaðir saman úr sumarfríi Sjá meira
Fanfest vekur athygli víða um heim Mikið hefur verið dýrðir í Hörpunni frá því að Fanfest hátíðin hófst þar í gær. Rúmlega 1.500 spilarar og aðdáendur EVE Online tölvuleiksins hafa heimsótt tónlistarhúsið. Þá hafa þúsundir fylgst með fyrirlestrum tengdum EVE Online og DUST 514 í gegnum netið. 23. mars 2012 13:24
Fanfest: Þjóðhátíð tölvuleikjaspilara Tölvuleikjaframleiðandinn CCP kynnti nú síðdegis nýjan tölvuleik fyrir Play Station leikjatölvur. Leikurinn hefur verið í þróun í fjögur ár og markar hann tímamót í tölvuleikjaiðnaði heimsins segir framkvæmdastjóri fyrirtækisins. 22. mars 2012 20:30
Lego framleiðir geimskip byggt á tölvuleiknum EVE "Það er verið að fljúga inn módeli sem verður til sýnis á Fanfest,“ segir Eldar Ástþórsson, verkefnastjóri markaðsdeildar hjá CCP. 21. mars 2012 09:00
Árshátíð CCP - DUST 514 heimsfrumsýndur "Við erum beinlínis að taka yfir Hörpuna," segir Eldar Ástþórsson, verkefnastjóri markaðsdeildar CCP. Fanfest hátíðin hófst í dag en þar mun tölvuleikjaframleiðandinn CCP heimsfrumsýna nýjustu afurð sína - DUST 514. 22. mars 2012 16:25
CCP með fyrirlestur í Hörpu Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP stendur fyrir opnum fyrirlestri og kynningu á starfsemi fyrirtækisins í Hörpunni á morgun. Rætt verður um fjölspilunarleikinn EVE Online og EVE Fanfest hátíðinni sem haldin verður í tónlistarhúsinu um helgina. 21. mars 2012 15:45