World Class stækkar 30. ágúst 2012 12:35 Fjölbreytt námskeið og hóptímar hefjast 3. september.
Nú í september mun verða tekinn í notkun glæsilegur 500 fermetra fjölnota salur sem í verða námskeið á borð við crossfit, herþjálfun og fitnessbox. "Salurinn verður einn sá glæsilegasti á landinu og er hrein viðbót við þann 200 fermetra crossfit-sal sem nú er fyrir í Kringlunni," segir Björn Leifsson, framkvæmdastjóri World Class. Björn segir enn fremur: "Með tilkomu nýju aðstöðunnar í Kringlunni mun crossfit í Kringlunni og Egilshöll sameinast í hina nýju aðstöðu í Kringlunni." Guðmundur Hafþórsson, íþróttafræðingur og stöðvarstjóri World Class í Kringlunni, segir kúnnahópinn ört stækkandi. "Stöðin er vel staðsett, miðsvæðis og fólk er duglegt að nýta sér aðstöðuna í hádeginu eða þegar það hefur lokið vinnu." Guðmundur bendir einnig á að fólk nýti sér í auknum mæli sólarhringsopnun stöðvarinnar. "Fólki finnst þetta mjög þægilegt að geta æft hvenær sem því hentar og getur sem dæmi tekið æfingu klukkan 18.00 á aðfangadag ef því er að skipta," segir Guðmundur. Guðmundur bendir á aukið úrval hóptíma í Kringlunni og nefnir þá sérstaklega hina feykivinsælu zumba- og tabatatíma. "Við í World Class byrjum með okkar hefðbundnu haustnámskeið frá 3. september og hér í Kringlunni má með sanni segja að við höfum eitthvað fyrir alla: Crossfit, 60+, mömmutíma, meðgönguleikfimi og svo nýtt námskeið sem nefnist Insanity og einkennist af þol- og kraftþjálfun. "Nýjung í haust fyrir yngri kynslóðina er tólf vikna námskeið fyrir 13-15 ára unglinga, Unglingahreysti. Einnig er Dansstúdíó World Class alltaf vinsælt fyrir þennan aldurshóp. "Fólk ætti endilega að kynna sér frábært úrval námskeiða og skrá sig í gegnum heimasíðu World Class," segir Guðmundur einnig. Ellen Björg Jónsdóttir, stöðvarstjóri World Class í Ögurhvarfi, segir stöðina hafa stækkað til muna. "Við erum nú einnig að taka þann hluta hússins sem Hestar og menn voru áður í og kemur sá hluti til stækkunar á hóptíma- og spinningsal hjá okkur. Aukin aðsókn hefur verið í stöðina í sumar enda eru hér frábærar útivistar- og hlaupaleiðir," segir Ellen.
Mest lesið Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Fleiri fréttir Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira