Traustur vinur umhverfis og húðar 26. september 2012 12:24 Guðrún Húnfjörð er vörumerkjastjóri Nathan & Olsen. mynd/gva
Neutral slær tvær flugur í einu höggi og fer vel með bæði húðina og umhverfið," segir Guðrún Húnfjörð, vörumerkjastjóri hjá Nathan & Olsen. Fyrirtækið flytur inn umhverfisvænar hreinlætis- og húðvörur frá Neutral sem Íslendingum eru að góðu kunnar. "Neutral-vörurnar hafa algjöra sérstöðu þegar kemur að gæðum og virkni um leið og þær eru sérlega mildar og grænar," segir Guðrún. Vörulína Neutral er bæði fyrir heimili og húð allrar fjölskyldunnar og þróuð í samvinnu við Astma- og ofnæmissamtök Danmerkur. "Langstærstur hluti Neutral-línunnar ber norræna Svansmerkið. Það auðveldar viðskiptavinum að hugsa vel um umhverfið án þess að slá af kröfum sínum um gæði, virkni og vellíðan," segir Guðrún. Allar vörur Neutral eru lausar við ilm- og litarefni og skaðleg aukefni. Húð- og snyrtivörur Neutral eru einnig án parabena. "Neutral Compact-þvottaefnin hafa vottun norræna Svansmerkisins til staðfestingar á því að þau uppfylli kröfur yfirvalda um umhverfisvænar vörur. Neytendur geta því auðveldlega lagt sitt af mörkum til að hlífa umhverfinu með því að skammta rétt í þvottavélina, þvo við lágt hitastig og nota umhverfisvæn þvottaefni," útskýrir Guðrún. "Neutral vinnur daglega að því að gera vörur sínar eins umhverfisvænar og hægt er án þess að slaka á aðalkröfunum sem eru að vörurnar eiga að vera ofnæmisvænar og gæðin áreiðanleg." Á dögunum opnaði heimasíðan neutral.is. Hún inniheldur ítarlegar upplýsingar um Neutral-vörurnar ásamt góðum ráðum um ofnæmi. Þess má geta að Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi mælir með vörum frá Neutral. "Neutral er danskt merki og þar í landi númer eitt á öllum sviðum. Umhverfisvitund Íslendinga fer sömuleiðis ört vaxandi og æ fleiri sem velja Neutral, sjálfs síns og náttúrunnar vegna."
Mest lesið Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Viðskipti erlent Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Samstarf Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Samstarf Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Viðskipti innlent Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Viðskipti innlent Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Viðskipti innlent Forstjóraskipti hjá Ice-Group Viðskipti innlent Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Viðskipti innlent Z kynslóðin og konur áberandi í kulnun og 35 prósent starfsfólks úrvinda vegna vinnu Atvinnulíf Fleiri fréttir Greiðsluáskorun „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Sjá meira