Lífið

Landar hverju verkefninu á fætur öðru í Lundúnum

Á uppleið
Edda Óskarsdóttir hefur haft nóg fyrir stafni síðan hún flutti til London til að reyna fyrir sér í fyrirsætubransanum.
Á uppleið Edda Óskarsdóttir hefur haft nóg fyrir stafni síðan hún flutti til London til að reyna fyrir sér í fyrirsætubransanum.
Edda Óskarsdóttir fyrirsæta flutti til London fyrir þremur vikum síðan og hefur landað hverju verkefninu á fætur öðru síðan þá. Ásgrímur Már Friðriksson hjá Eskimó segir þetta frábæran árangur hjá Eddu sem er á skrá hjá Select umboðsskrifstofunni í London.

Edda hafði aðeins verið á skrá hjá Eskimo í viku þegar Select fékk augastað á henni, en Edda hóf fyrirsætustörf í haust og því telst þetta einstakur árangur. Fyrirsæturnar Natasha Poly, Agyness Deyn, Stella Tennan, Brooklyn Decker og karlfyrirsætan David Gandy eru á meða þeirra sem Select hefur á sínum snærum.

„Edda fékk fyrsta verkefnið þann 12. janúar og hefur varla stoppað síðan. Hún er ekki búin að vinna við þetta lengi en virðist vera fædd í starfið. Hún er mjög fótógenísk en líka skemmtileg og heillandi þannig þetta er henni auðvelt," segir Ásgrímur Már. Meðal þeirra verkefna sem Edda hefur tekið að sér er myndaþáttur fyrir vefverslanirnar Asos og Temperley, vefauglýsing fyrir tískurisann Burberry og auglýsing fyrir næstu jólaherferð tískuverslunarinnar Miss Selfridge. Auk þess var hún boðuð í prufumyndatöku hjá ljósmyndaranum Emmu Summerton sem hefur mikið myndað fyrir tímaritið ID en einnig ítalska Vogue, Dazed & Confused og W.

Edda er nítján ára gömul og ákvað að taka sér frí frá skóla og tónlistarnámi til að láta reyna á fyrirsætustarfið. Hingað til hefur það gengið að óskum en Ásgrímur segir mikla samkeppni ríkja innan bransans og því þurfi breitt bak og eljusemi til að ná langt.

„Þetta er bara eins og hvert annað starf, það tekur tíma að vinna sig upp en mér heyrist á öllu að Edda sé að standa sig með prýði."

Ekki náðist í Eddu við vinnslu fréttarinnar.

sara@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.