Tónlist

Þýsk Mercury-sveit til Íslands

Johnny Zatylny bregður sér í hlutverk Freddie Mercuy og þykir gera það sérlega vel.
Johnny Zatylny bregður sér í hlutverk Freddie Mercuy og þykir gera það sérlega vel.
Þýska hljómsveitin MerQury, sem spilar vinsælustu lög Queen, stígur á svið í Laugardalshöll 7. apríl.

MerQury hefur verið starfandi síðan 1991 og hefur komið fram á um tvö þúsund tónleikum. Það er hinn kanadíski Johnny Zatylny sem bregður sér í hlutverk söngvarans sáluga Freddie Mercury og þykir gera það einkar vel.

„Þetta er geggjað dæmi. Það er eins og þú sért að horfa á Freddie Mercury á sviðinu í gyllta búningnum," segir tónleikahaldarinn Sigurður Kolbeinsson. „Þeir hafa haldið rétt rúmar tvö þúsund sýningar og hafa spilað í 21 ár samfleytt og þeir eru mjög öflugir á tónleikum."

Stutt er síðan sveitin spilaði í Horsens í Danmörku og þóttu tónleikarnir heppnast sérlega vel.

Í fyrra voru liðin tuttugu ár síðan Freddie Mercury dó og af því tilefni voru haldnir fernir tónleikar í Hörpu. Þeir heppnuðust svo vel að ákveðið var að halda aukatónleika í Hörpu 18. apríl, eða aðeins ellefu dögum eftir MerQury-tónleikana í Laugardalshöll.

„Það er óheppilegt að þetta skuli vera á sama tíma," segir Sigurður, spurður út í hina tónleikana.

Miðasala á Mercury hefst í dag kl. 10 á Midi.is. -fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.