Kallaði fram strákinn í sér 25. október 2012 12:00 "Ég átti líklega meiri samleið með Bond sem barn og unglingur en ég hef átt síðustu ár,“ segir Sam Mendes, leikstjóri nýjustu Bond-myndarinnar.
Hann er þekktur fyrir íhugular kvikmyndir sem líklegri eru til að taka á mildri miðstéttarangist en yfirvofandi heimsendi af völdum vopnþungra hryðjuverkamanna. Sif Sigmarsdóttir tók leikstjórann Sam Mendes tali og komst að því hvers vegna hann ákvað að leikstýra nýjustu Bond-myndinni. Svarið er að finna í fylleríi. Í hlutverki sínu sem James Bond er leikarinn Daniel Craig fær um ofurmannlegar dáðir. Í nýjustu Bond-myndinni, Skyfall, sem frumsýnd er á morgun hristir hann af sér byssukúlurnar eins og regndropa og sprengir vopnlaus upp heilu óvinasveitirnar. Afrekin hafa þó fá verið jafnofurmannleg og að sannfæra Sam Mendes um að taka sér hvíld frá kvikmyndum þar sem saga og karaktersköpun eru þungamiðjan og leikstýra eltingaleikjum og skotbardögum í Bond. "Craig er ástæðan fyrir því að ég gekk til liðs við teymið," segir Mendes sem hefur starfað í Hollywood til fjölda ára og leikstýrt myndum á borð við American beauty og Revolutionary road þar sem hann vann m.a. með þáverandi eiginkonu sinni, leikkonunni Kate Winslet. "Ég var hrifinn af honum í Casino Royale auk þess sem við erum vinir."Daniel Craig sannfærði Mendes um að taka að sér leikstjórn Skyfall.Samstarfið hófst er þeir hittust í partíi. Craig hafði hvolft í sig nokkrum drykkjum þegar hann vatt sér upp að Mendes, steig gróflega út fyrir valdsvið sitt eins og Bond einum er lagið og hóf að reyna að sannfæra Mendes um að taka að sér leikstjórn myndarinnar.Javier Bardem leikur skúrkinn Silva.Mendes vill þó ekki meina að mikill munur sé á lögmálum Bond og annarra mynda sem hann hefur leikstýrt. "Maður þarf alltaf að tryggja að karakterarnir eigi sér tilfinningalegan veruleika. Manni þarf að þykja vænt um þá. Það er ekki hægt að ganga út frá því að áhorfendur hafi áhuga á þeim eingöngu vegna þess að þeir heita James Bond eða eru Bond-þorparar. Það þarf að réttlæta tilvist hverrar einustu persónu, sérstaklega þeirrar sem fólk telur sig þekkja best."Franska leikkonan Bérénice Marlohe leikur Bond-stúlkuna Sévérine.Gagnrýnendur eru sammála um að Mendes setji mark sitt á Skyfall en í myndinni er kafað dýpra í tilfinningalíf Bond en verið hefur auk þess sem hún þykir drungalegri en fyrri myndir. Mendes þakkar það því sem hann telur brautryðjendaverk leikstjórans Christopher Nolan, Batman-trílógíunni The Dark Knight. "Það gerðist eitthvað í kjölfarið á The Dark Knight þegar kom að stórmyndum. Mér fannst hún stórkostleg. Hún var drungaleg en samt vinsæl. Vegna hennar er allt í einu orðið auðveldara að fá að fjalla um alvarleg og flókin málefni í dýrum hasarmyndaseríum."Judi Dench, Ralph Fiennes og Ben Whisaw í hlutverkum sínum.En Skyfall segir hann þó langt frá því að vera eintóma eymd. "Ég átti meiri samleið með Bond sem unglingur en ég hef átt síðustu ár. Við gerð myndarinnar reyndi ég því að kalla fram þrettán ára strákinn í mér og rifja upp hvað það var sem kveikti í mér og vakti með mér spennu þegar ég var þrettán," segir Mendes sem er sannfærður um að allir finni eitthvað við sitt hæfi í Skyfall.
Lífið Mest lesið Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Lífið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Lífið Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Lífið samstarf Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Fleiri fréttir Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Sjá meira