Opnaðu vefverslun á örfáum mínútum 12. nóvember 2012 15:00
Karfa.is er fullkomin og einföld leið til að opna vefverslun. Boðið er upp á sérsniðnar lausnir en líka sjálfvirkar sölulausnir sem þýða að einstaklingur með góða hugmynd að verslun getur byrjað reksturinn í sófanum heima og verið kominn með netbúð í loftið á innan við hálftíma. Vefverslunarkerfið Karfa.is er selt í áskrift. Ódýrasti pakkinn kostar 5.900 krónur á mánuði og innifelur meðal annars vefsvæði og greiðslukortaþjónustu. Til eru fyrirframhönnuð verslunarútlit sem áskrifendur geta valið um en auk þess er hægt að fá sérútbúnar lausnir ef þarf og til dæmis láta hanna sérstaka umgjörð utan um verslunina eða tengja vefsölukerfið við lager- og bókhaldsforrit. Karfa.is fór í loftið í vor og áskrifendahópurinn stækkar hratt og örugglega. Þjónusta sem þessi lækkar verulega þann tækni- og kostnaðarþröskuld sem fyrirtæki hafa áður þurft að yfirstíga til að geta byrjað að nýta sér möguleika þess markaðstorgs sem internetið er. Fyrir fimm árum var ekki óalgengt að það kostaði 500-800.000 krónur fyrir meðalstórt fyrirtæki að opna vefverslun, en nú er hægt að byrja að selja á netinu á örstuttum tíma og fyrir brot af kostnaðinum. Jafnvel á litlum markaði eins og Íslandi er netið spennandi verslunarstaður og hægt að finna ýmis dæmi hér á landi um vefverslanir sem gera það gott með litlum tilkostnaði og lítilli yfirbyggingu. Fyrir verslun í Reykjavík getur það stækkað markaðinn verulega að fara á netið, og nær hún þannig betur til neytenda á landsbyggðinni og svo öfugt. Mikil þróunarvinna liggur að baki Körfu.is og varð fyrsti vísirinn að þessari lausn til árið 2006. Forritið hentar ekki bara fyrir íslenska markaðinn og er markið sett á erlenda markaði, meðal annars Skandinavíu. Fyrirtækinu hefur tekist að skapa mjög háþróaða lausn sem ætti að geta höfðað til einyrkja, smærri og stærri fyrirtækja víða. Nánari upplýsingar má finna hér.
Mest lesið Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Viðskipti innlent Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Viðskipti innlent Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Viðskipti innlent Danir lengra komnir í að nýta spuna á vinnustöðum Atvinnulíf Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk Viðskipti innlent Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Viðskipti innlent Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Viðskipti innlent „Algjört siðleysi“ Neytendur Fleiri fréttir Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Sýn tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið 2025 Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Sjá meira