Bílar

Sýnishorn úr næstu þáttaröð Top Gear

Saga Top Gear nær aftur til ársins 1977.

Eftir heilt ár án nýrra þátta af Top Gear er nú ekki nema vika í að nýjasta þátttaröð breska þríeykisins hefjist á BBC 2. Til að auka spennuna hefur BBC útbúið örlítið brot úr þáttunum blandað viðbrögðum þeirra kvenna sem sjá um fataþvott þáttastjórnendanna.

Í myndskeiðinu sést Jeremy Clarkson flýja skothríð orustuflugvélar á Lexus LFA, Richard Hammond gera heiðarlega tilraun til að eyðileggja Subaru WRX í hitabeltisskógi og alla þáttastjórnendurna leika risarúbbý á ódýrum bílum.






×