Benz kynnir CLA í Berlín í dag 15. janúar 2013 13:38 Hulunni svipt af CLA í Berlín
CLA er byggður á sama undirvagni og A-Class og B-Class. Mercedes-Benz mun kynna til leiks glænýjan bíl, CLA-Class á alþjóðlegri tískuviku Mercedes-Benz sem hefst í Berlín í dag 15. janúar. CLA er fjögurra dyra sportlegur bíll hannaður sem coupé og verður í boði með 4MATIC fjórhjóladrifi ásamt miklum búnaði. Hönnunin er sportleg og sækir hann nokkuð svip til CLS-Class og er ekki leiðum að líkjast. Kraftmikið grillið að framan lítur út fyrir að vera alsett demöntum og straumlínulagaðar hliðar bílsins og sportlegur afturhluti hans eru talsvert fyrir augað. Mikið er lagt upp úr vönduðu efnisvali í innréttingunni, sem búast má við af Benz. Bíllinn verður einnig fáanlegur með panomaric glerþaki. CLA er með lægstu loftmótstöðu sem um getur í bíl eða 0.22 Cd. CLA-Class er framleiddur með 1,6 og 2,0 lítra bensínvélum sem skila 122 og 156 hestöflum. Kraftmesta útfærslan CLA 250 er með 211 hestafla vél. Tvenns konar díselvélar bjóðast. Sú minni mun skila 136 hestöflum og togið er 300 NM og sú stærri 170 hestöflum og 350 NM í togi en á sama tíma er CO2 losunin aðeins 109 g/km. Allar vélarnar í nýjum CLA-Class verða með ECO start/stop búnaði. Hægt verður að fá bílinn með nýrri sex gíra beinskiptingu eða 7G-DCT sjálfskiptingu eins og er í nýjum A-Class. Nýr CLA-Class er með árekstrarvara en búnaðurinn greinir þegar fjarlægð frá bíl eða kyrrstæðri mótstöðu er of lítil og lætur ökumann vita með mynd- eða hljóðmerki. CLA er væntanlegur á markað í apríl hjá Öskju og hingað til lands fyrri hluta sumars. CLA er ætlað stórt hlutverk á Bandaríkjamarkaði, en hann er minnst bíll Benz sem þarf er seldur, þar sem hvorki A-Class né B-Class eru í boði. Mikil leynd hefur hvílt yfir þessum CLA bíl frá Mercedes Benz, en hann kom hingað til lands til prófana í haust og þá náðust myndir af honum við Bláa lónið sem vöktu athygli um allan heim.Mercedes Benz CLA við Bláa lónið í haust
Mest lesið Lögmaður í haldi grunaður um skipulagða brotastarfsemi Innlent Fannst lifandi í kistu í líkbrennslu Erlent Deilur barna leiddu til tilraunar til manndráps Innlent Ítalski baróninn lagði landeigendur Innlent Hefur ekki fengið starfsleyfi eftir fimm mánuði: „Þetta hefur lagst þungt á mig“ Innlent Foráttuveður í kortunum Innlent Óttast hópuppsögn sem samsvarar sextán þúsund höfuðborgarbúum Innlent Þriðji framkvæmdastjórinn frá valdatöku Guðrúnar ráðinn Innlent Orð borgarstjórans dapurleg: „Skýrt dæmi þess hvernig vont skipulag getur skert lífsgæði“ Innlent Helsti styrkleiki Íslands sé orðinn að veikleika og landið „freistandi skotmark“ Innlent
Orð borgarstjórans dapurleg: „Skýrt dæmi þess hvernig vont skipulag getur skert lífsgæði“ Innlent
Orð borgarstjórans dapurleg: „Skýrt dæmi þess hvernig vont skipulag getur skert lífsgæði“ Innlent