í fyrsta sinn í nýjum höfuðstöðvum Toyota í Kauptúni í Garðabæ.
Næsta laugardag heldur Toyota árlega jeppasýningu sína. Þetta er í fjórða sinn sem jeppasýningin er haldin hjá Toyota en hún hefur þegar unnið sér sess meðal jeppaáhugamanna sem einn af hápunktum ársins.
Sýningin er nú haldinn í fyrsta sinn í nýjum höfuðstöðvum Toyota í Kauptúni í Garðabæ. Sýningarsvæðið er því stærra og betra en áður. Á sýningunni má sjá það besta sem Toyota og samstarfsaðilar hafa fram að færa í jeppum og jeppabreytingum.
Íslandsbíllinn Land Cruiser 150, Land Cruiser 200 og Hilux verða stjörnur sýningarinnar. Mjög gott úrval óbreyttra jeppa í þessum tegundum verður í sýningarsal og boðið verður upp á reynsluakstur. Jeppar sem breytt er fyrir 33 – 46 tommu dekk verða sýndir bæði í sal og á útisvæði.
Arctic Trucks tekur þátt í sýningunni og verður með nýja Hilux og Land Cruiser bíla sem breytt hefur verið fyrir 38" dekk. Klettur sýnir jeppadekk og Vífilfell svalar þorstanum með ísköldu Coca-Cola og Coke Zero. Boðið verður upp á góðgæti frá Freyju og 4x4 klúbburinn og Útivist kynna starfsemi sína. Einnig verður 66° norður með kynningu á útivistarfatnaði og mun meðal annars sýna útbúnað Vilborgar Örnu Gissurardóttur sem hún notaði í ferð sinni á Suðurpólinn.
Á þriðja þúsund gestir komu á sýninguna í fyrra og er reiknað með að minnsta kosti sama fjölda í ár enda er þetta án efa ein glæsilegasta bílasýning ársins.
Risa jeppasýning hjá Toyota á laugardag
