Hraðinn drepur ekki 24. febrúar 2013 11:00 Hraður akstur í Þýskalandi drepur færri en í Bandaríkjunum þar sem takmarkanir á hraða eru miklar
Í Bandaríkjunum deyja 136% fleiri í umferðinni en í hraðbrautarlandinu Þýskalandi. Eflaust má segja að það ríki misskilningur um að hraði á götunum drepi helst og slasi fólk. Það sannast þó æ oftar að það eru allt aðrir þættir sem stuðla að umferðaslysum og dauðsföllum af þeim völdum. Tölur um dauðsföll í Þýskalandi í fyrra voru birtar nýlega. Þar dóu 3.606 í umferðinni , það er 10 á dag eða 44 á hverja milljón íbúa. Í Bandaríkjunum dóu hinsvegar 104 á hverja milljón íbúa árið 2011, ríflega helmingi fleiri en í Þýskalandi. Í Þýskalandi er víða ótakmarkaður hraði á hraðbrautunum og almennt leyfður hærri hámarkshraði en í Bandaríkjunum. Engu að síður eru dauðsföll svo miklu færri. Einnig verður að taka með í reikninginn að ógrynni bíla frá öðrum löndum, misvel búnir, fara um vegi Þýskalands og í umferðinni þar er mikið um mótorhjól og flutningabíla sem skerða útsýni ökumanna. Í Þýskalandi er hinsvegar meiri og betri kennsla fyrir ökumenn og strangara eftirlit með ástandi bíla. Þar fara ökumenn eftir reglum í umferðinni til að tryggja að hún gangi sem hraðast og snurðulaust, skráðum reglum sem óskráðum. Það kann að hljóma þversagnarkennt en hár hraði heldur ökumönnum vakandi og óskiptum að akstrinum og minni líkur eru til þess að þeir séu að gera annað á meðan. Rannsóknir á umferðarslysum leiða hinsvegar sífellt betur í ljós að það eru einmitt þessir aðrir hlutir eins og að fikta í símanum eða útvarpinu, borða, eða annað sem fólk heldur að það ráði við samfara akstri sem drepur í umferðinni, ekki hraðinn.
Mest lesið Nítján ára ferðamaður fannst látinn Erlent Fagnar „hugrökkum hetjum“ Bandaríkjahers en skrifar um þarmaflóruna á sautjánda júní Innlent Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Innlent Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Erlent Gul viðvörun: Brýna fyrir fólki á húsbílum að vara sig á vindinum Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Boltaleikir bannaðir á skólalóðinni eftir klukkan tíu Innlent Bíll í ljósum logum á Skaganum Innlent Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Erlent Um sjötíu látnir í flóðunum og stúlknanna enn leitað Erlent