Tónlist

Vill verða fyrsti kvenrapparinn í Afganistan

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Helstu áhrifavaldar Soururi eru Rihanna, Nicki Minaj og Jennifer Lopez.
Helstu áhrifavaldar Soururi eru Rihanna, Nicki Minaj og Jennifer Lopez.
Rapparinn Paradise Soururi fluttist frá Afganistan á unglingsárum sínum en hefur nú snúið aftur til heimalandsins. Hún hefur náð athygli fyrir tónlist sína í Tadsjikistan, en hefur átt erfitt uppdráttar í Afganistan og orðið fyrir miklu aðkasti.

Í viðtali við The Washington Post segir Soururi að ástandið í Afganistan hafi ekki breyst nægilega mikið frá því landið var undir stjórn talíbana, en þá máttu konur hvorki syngja né dansa. Hún taldi ástandið þó hafa batnað og ákvað því að flytja aftur til Afganistan.

„Afganar eru ekki reiðubúnir fyrir stúlkur eða konur sem koma fram opinberlega,“ segir Soururi, en helstu áhrifavaldar hennar eru Rihanna, Nicki Minaj og Jennifer Lopez. Hún segist verða fyrir stöðugu áreiti úti á götu eða þegar hún tekur strætisvagn.

„Það er hættulegt að vera söngkona. Þú dansar og ert svo frjáls og opin og karlarnir skilja það ekki.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.