Tónlist

Kveðju- og útgáfutónleikar Markúsar & The Diversion Sessions

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Markús & The Diversion Sessions
Markús & The Diversion Sessions
Hljómsveitin Markús & The Diversion Sessions efnir til stórtónleika í Gym & Tonic sal Kex Hostel á morgun.

Öllu verður tjaldað til á tónleikunum en þetta verða kveðjutónleikar fyrir bassaleikara hljómsveitarinnar Georg Kára Hilmarsson sem heldur út í masters nám í tónsmíðum í lok ágúst.

Hljómsveitin The Diversion Sessions tók upp stutt skífu árið 2012 og mun hún vera til sölu í takmörkuðu upplagi á tónleikunum.

Um upphitun sjá hljómsveitirnar Hymnalaya og Nini Wilson.

DJ Benson is Fantastic spilar á milli atriða.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 og kostar 1000 kr. inn.

Markús & The Diversion Sessions eru þeir  Markús Bjarnason, Georg Kári Hilmarsson, Ási Þórðarson og Marteinn Sindri Jónsson.

Markús hefur spilað einn af og til í gegnum árin, og einnig með hljómsveitunum Campfire Backtracks, Sofandi, Glasamar further than far far og Skátum. Í dag er hann einnig meðlimur í hljómsveitinni Stroff.

The Diversion Sessions fæddist þegar Markús fór að huga að útgáfu fyrir plötuna, Now I know, sem gefin var út árið 2010 í takmörkuðu upplagi og seldist fljótt upp. Hann hafði reglulega leitað að trommuleikara og bassaleikara til að spila með og fann þá Ása og Georg Kára.

Nú er Marteinn Sindri einnig genginn til liðs við hljómsveitina, en hann átti upphaflega að vera hluti af bandinu, en gat það ekki vegna anna.

Ýmsir gestaspilarar hafa spilað með Markús & the Diversion Sessions, bæði á tónleikum sem og í upptökum. Steingrímur Teague spilaði til dæmis á flygil og syntha í laginu Sweet Nothing á nýju plötunni sem kemur út á fimmtudaginn.

Hljómsveitin hefur meðal annars komið fram á Innipúkanum og á Airwaves, bæði skiptin með fullu bandi, lúðrahljómsveit og bakröddum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.