Tónlist

Lady Gaga frumflytur lög í London

Lög af nýju plötunni verða frumflutt í London.
Lög af nýju plötunni verða frumflutt í London.
Lady Gaga ætlar að frumflytja lög af plötu sinni Artpop á iTunes-hátíðinni í London 1. september.



Tónleikarnir munu standa yfir í klukkustund, eingöngu með nýju efni, og ríkir mikil eftirvænting eftir atburðinum.



Gaga hefur ekki sungið opinberlega síðan hún varð að aflýsa tónleikaferð sinni um Bandaríkin í ágúst í fyrra eftir að hún meiddist illa á mjöðm og þurfti á aðgerð að halda. 



Platan Artpop er væntanleg í verslanir 11. nóvember og heitir fyrsta smáskífulagið Applause. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.