Enn einn Lamborghini fuðrar upp Finnur Thorlacius skrifar 7. september 2013 10:45
Lamborghini bílar virðast vera einir eldfimustu hlutir sem sögur fara af. Nánast í hverri viku berast fréttir af Lamborghini bílum sem fuðra upp fyrir framan eigendur sína og eru þeir í flestum tilvikum heppnir að komast út úr þeim áður en eldur verður þeim hratt og vel að bráð. Lamborghini bílar eru langt frá því ódýrir og því er tjónið í hvert sinn á við tugi annarra bíla og gera má kröfu um það að svona dýrir bílar séu ekki með þennan leiða ávana. Eigandi þessa Lamborghini bíls var að aka honum eftir M6 hraðbrautinni í Bretlandi þegar vélarrúm hans varð alelda og brann hann síðan allur og er algerlega ónýtur. Það sem verra var, það þurfti að loka hraðbrautinni í tvo og hálfan klukkutíma á meðan slökkviliðsmenn slökktu í bílnum og honum var komið af vettvangi. Búast má við að ferð tugþúsunda vegfarenda hafi fyrir vikið tafist. Lamborghini bíllinn var af af Murcielago-gerð og kostar yfir 50 milljónir króna í Bretlandi. Sjá má bílinn í miklu eldhafi í myndskeiðinu.Búið að slökkva í bílnum
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent