Tónlist

"Þessir 18 mánuðir eru búnir að vera magnaðir"

Boði Logason skrifar
Of Monsters and Men þakka fyrir sig í myndbandinu
Of Monsters and Men þakka fyrir sig í myndbandinu Mynd/Youtube og Vísir
Of Monsters and Men fara yfir síðustu 18 mánuði í rúmlega fimm mínútna löngu myndbandi á Facebook-síðu sinni í dag. Þar þakka þau aðdáendum sínum fyrir stuðninginn.

Á þessum 18 mánuðum hefur hljómsveitin haldið 231 tónleika í 27 löndum. Nú er tónleikaferðalagi þeirra lokið, en markmiðið með því var að kynna plötuna My Head Is An Animal.  

„Þessir 18 mánuðir eru búnir að vera magnaðir. Við erum búin að spila út um allan heim og eiga svo margar æðislegar stundir. Við þökkum ykkur fyrir það!! Vonandi njótið þið myndbandsins,“ skrifar hljómsveitin á Facebook-síðu sína. 

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.