Tónlist

Tvö ný lög á safnplötu The Killers

Hljómsveitin The Killers frá Las Vegas hefur tilkynnt um útgáfu sinnar fyrstu safnplötu. Hún nefnist Direct Hits og kemur út 11. nóvember.

Fimmtán lög verða á plötunni, þar af tvö ný sem nefnast Just Another Girl og Shot At The Night. Það síðarnefnda kemur út sem smáskífa 4. nóvember. Upptökustjóri þess er Anothony Gonzalez úr hljómsveitinni M83.

"Þessi plata er góð leið til að hreinsa allt saman upp og horfa svo til næsta verkefnis," sagði söngvarinn Brandon Flowers við NME.

Síðasta hljóðversplata The Killers, Battle Born, kom út í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.