Tónlist

Ný plata með Bítlunum væntanleg

Jón Júlíus Karlsson skrifar
John Lennon, Ring Starr, Paul McCartney og George Harrisson skipuðu eina vinsælustu hljómsveit allra tíma.
John Lennon, Ring Starr, Paul McCartney og George Harrisson skipuðu eina vinsælustu hljómsveit allra tíma. Mynd/AFP
Hjóðversupptökur með bresku hljómsveitinni The Beatles og umræður meðlimana við upptökur verða gefnar út á nýrri plötu. Á plötunni, sem ber nafnið 'On Air - Live At The BBC Volume 2' verður að finna lög frá því snemma á ferli Bítlanna og einnig þegar sveitin lék tökulög í útsendingu hjá BBC. Þetta er önnur platan sem gefin er út með upptökum BBC af Bítlunum. Platan 'Live at the BBC' var gefin út árið 1994 og fékk gríðarlega góð viðbrögð.

Bítlarnir léku gíðarlegan fjölda laga hjá BBC á árunum 1962 til 1965 en alls kom sveitin 275 sinnum fram á þessum tíma. Alls eru til upptökur af 88 mismunandi lögum frá þessum tíma en fjöldi laga er að finna í einni eða fleiri útgáfum.

Á þessum tíma vann sveitin af miklum krafti og í viðtali sagði George Harrisson, gítarleikari, að allt hefði gerst nánast án skipulagningar. „Við vorum vanir að keyra 200 mílur á gömlum sendiferðabíl til að fara í upptöku hjá BBC í Londum. Eftir það þurftum við jafnvel að keyra alla leið til Newcastle til að spila um kvöldið,“ sagði Harrisson á sínum tíma.

Þessi nýja plata með Bítlunum mun koma út þann 11. nóvember næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.