Tónlist

Nýtt tónlistarmyndband frá Úlfi

Freyr Bjarnason skrifar
Úlfur Hansson hefur sent frá sér nýtt myndband.
Úlfur Hansson hefur sent frá sér nýtt myndband. fréttablaðið/anton
Tónlistarmaðurinn Úlfur hefur sent frá sér myndband við lagið Heaven In A Wildflower. Leikstjóri var Máni Sigfússon.

Heimsfrumsýning á myndbandinu var í höndum tónlistarritsins Stereogum.com.

Lagið er að finna á plötu hans, White Mountain, sem kom út í mars hjá bandaríska útgáfufyrirtækinu Western Vinyl og japanska útgáfufyrirtækinu After Hours.

Síðasta myndband Úlfs og Mána vakti mikla athygli. Rúmlega 80 þúsund manns hafa séð það á Vimeo.com

Úlfur hefur verið virkur í tónlistarlífi hérlendis sem og á erlendum vettvangi. Hann hóf nám við nýmiðlabraut Listaháskóla Íslands árið 2008 og hefur síðan þá gefið út tvær sólóplötur.

Hann hefur einnig unnið hljóðverk fyrir innsetningar og samið tónlist fyrir kvikmyndir.

Hann hlaut nýverið nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir uppfinningu sína OHM, eða segulhörpu, sem er ný tegund hljóðfæris. Úlfur fékk fyrstu verðlaun fyrir hönd RÚV á alþjóðaþingi tónskálda UNESCO fyrir lagið So Very Strange þar sem hljóðfærið kemur við sögu.

Úlfur stundar nú meistaranám í raftónlist við Mills College í Kaliforníu.

Máni Sigfússon stundaði nám við kvikmyndagerð í Amsterdam og fór síðan til Íslands þar sem hann kláraði B.A nám í myndlist við Listaháskóla Íslands. Hann hefur gert yfir tuttugu tónlistarmyndbönd á síðastliðnum þremur árum.

Úlfur - Heaven In A Wildflower from Máni M. Sigfússon on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.