Tónlist

Ben Bridwell hefur sólóferil

Ben Bridwell með Band of Horses í Hörpu.
Ben Bridwell með Band of Horses í Hörpu. Fréttablaðið/stefán
Ben Bridwell, forsprakki bandarísku hljómsveitarinnar Band Of Horses, ætlar að gefa út sólóplötu undir nafninu Birdsmell.

Hann ætlar í tónleikaferð um Bandaríkin í nóvember undir þessu nýja nafni. Einnig gefur hann út sjö tommu í takmörkuðu upplagi sem aðdáendur geta keypt á tónleikum.

Band of Horses spilaði í Eldborgarsal Hörpu fyrr á þessu ári við mjög góðar undirtektir. Hljómsveitin hefur gefið út fjórar hljóðversplötur. Sú síðasta kom út 2012 og hét Mirage Rock.

Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á eitt laganna frá Birdsmell, Throw My Mess Around.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.