1.000 Toyota bílar seldir á árinu Finnur Thorlacius skrifar 4. október 2013 11:15 Jóhann Guðmundsson, Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi, Þórdís Dagbjört Gunnarsdóttir og Hlynur Ólafsson viðskiptastjóri hjá Toyota Kauptúni.
Í dag tóku hjónin Þórdís Dagbjört Gunnarsdóttir og Jóhann Guðmundsson við 1.000. og 1.001. Toyota bílunum sem afhentir eru á þessu ári. Þau tók við lyklunum að bronslitum RAV4 og dökkgráum Yaris úr hendi Úlfars Steindórssonar, forstjóra Toyota á Íslandi. Þetta er fimmti og sjötti Toyotabíllinn sem hjónin Þórdís og Jóhann kaupa og þau tilheyra því stórum hópi tryggra Toyotaeigenda á landinu. Mörg dæmi er um heilu fjölskyldurnar þar sem aðeins eru keyptir Toyotabílar árum og áratugum saman en þó er heldur sjaldgæft ef ekki einsdæmi að hjón taki við tveimur Toyotum sama daginn. RAV4 og Yaris eins og hjónin tóku við í dag eru mest seldu gerðirnar hjá Toyota það sem af er þessu ári. Ný kynslóð RAV4 var kynnt fyrr á árinu og hafa viðtökur verið mjög góðar. Bíllinn er lengri og betur búinn en eldri kynslóðir og hentar vel við íslenskar aðstæður. Ný kynslóð Yaris kom á markað á síðasta ári og var bíllinn þá í fyrsta sinn kynntur í Hybridútfærslu.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent