Tónlist

Taylor Swift sýnir á sér nýja hlið

Taylor Swift sýnir á sér nýja hlið á næstu plötu.
Taylor Swift sýnir á sér nýja hlið á næstu plötu. NORDICPHOTOS/GETTY
Tónlistarkonan Taylor Swift hefur að undanförnu unnið að nýju efni fyrir væntanlega plötu. Hún tjáði sig á dögunum við Associated Press, um að næsta plata muni koma fólki á óvart og að hún ætli að breyta mikið til á næstu plötu.

Einnig tjáði hún í viðtali, þegar hún vann sín sjöttu verðlaun sem lagahöfundur ársins af Nashville Songwriters Association International, hversu mikilvægt það væri að breyta til á milli platna og prófa nýja hluti.

Taylor Swift er 23 ára gömul og gaf hún síðast út plötuna Red, árið 2012. Platan hefur farið sigurför um allan heim og hefur selst í tæpum fjórum milljónum eintaka í Bandaríkjunum og í yfir sex milljónum eintaka um allan heim.

Hér fyrir neðan er titillagið af nýjustu plötu söngkonunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.