Persónuleg þjónusta og traust 18. janúar 2013 06:00 Nethönnun sérhæfir sig í skipulagningu, viðhaldi og uppsetningu tölvukerfa og tæknilegri aðstoð við tölvudeildir. Þar er lögð áhersla á persónulega þjónustu. Mynd/Stefán "
Við höfum starfað í fjórtán ár og frá upphafi sérhæft okkur í skipulagningu, viðhaldi og uppsetningu tölvukerfa ásamt tæknilegri aðstoð við tölvudeildir,“ útskýrir Sveinn Akerlie, sölu- og markaðsstjóri upplýsingatæknifyrirtækisins Nethönnunar. Hjá Nethönnun er rekin bæði kerfisdeild og hugbúnaðardeild. Kerfisdeildin þjónustar fyrirtæki með tölvukerfi og hugbúnaðardeildin sinnir vefkerfissmíði og sérsmíðum á ýmiss konar hugbúnaðarverkefnum. Þá býður Nethönnun einnig tilbúnar heimasíður á vefsíðunni unit.is. "Þar er að finna tilbúnar heimasíður og veflausnir fyrir fyrirtæki. Viðskiptavinurinn velur einfaldlega síðu sem við setjum upp innan tveggja daga eða samdægurs,“ segir Sveinn. "Við bjóðum einnig upp á síðuna X.is sem er sjálfsafgreiðsla, eða internetsjálfsali eins og við köllum það. Þar geta viðskiptavinir keypt íslensk lén og hýsingar, dns-hýsingar og fleira. X.is er einnig tölvuský-þjónusta þar sem hægt er að vera með nokkra netþjóna í skýi en Nethönnun var einmitt fyrsta fyrirtækið á Íslandi til að bjóða þá þjónustu, eða frá árinu 2010,“ segir Sveinn. "Þá er einnig hægt að hafa samband við okkur beint vegna sérsmíði vefkerfa og sérsmíði á vefsíðum fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. Viðskiptavinir okkar spanna allan skalann allt frá litlum einstaklingsfyrirtækum til stórra og umsvifamikilla fyrirtækja. Við sjáum meðal annars um tölvukerfið fyrir N1 og erum fjórði stærsti hýsingaraðili á Íslandi. Hér starfa fjórtán manns, kerfisfræðingar, forritarar og grafískir hönnuðir, og er persónuleg þjónusta og traust okkar aðalsmerki.“ Nánari upplýsingar er að finna á síðunni nethonnun.is.
Mest lesið Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Síðasti dropinn á sögulegri stöð Viðskipti innlent Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Viðskipti innlent Ofurtollarnir lækkaðir tímabundið Viðskipti erlent Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Samstarf Ríkið eignast hlut í Norwegian Viðskipti erlent Svandís tekur við Fastus lausnum Viðskipti innlent Hrósæfingar fyrir vinnustaði, gryfjur og góð ráð Atvinnulíf Fleiri fréttir Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira
Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent
Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent