Tónlist

Þorri íslenskra rokkara á svið

Páll Rósinkranz er á meðal þeirra íslensku rokkara sem ætla að trylla lýðinn á Skonrokk tónleikunum í mars.
Páll Rósinkranz er á meðal þeirra íslensku rokkara sem ætla að trylla lýðinn á Skonrokk tónleikunum í mars.
„Við getum kallað þetta skemmtilegt rokk en við tökum fyrir lögin sem hafa verið að kalla fram gæsahúð hjá fólki svo áratugum skiptir,“ segir Bjarni Ólafur Guðmundsson, sem, ásamt Birgi Nielsen, stendur fyrir Skonrokktónleikum nú í mars.

Skonrokktónleikarnir hafa verið haldnir einu sinni áður, í nóvember síðastliðnum, en eiga sér þó lengri sögu. „Birgir hélt fyrst álíka tónleika í Eyjum á Sjómannadaginn 2010. Þá voru þeir kallaðir Rokkað til heiðurs sjómönnum. Við tókum þá svo aftur á Sjómannadaginn síðasta sumar og ákváðum þá að fara með þetta lengra,“ segir Bjarni.

Þorri íslenskra rokkara kemur fram á Skonrokk, en kjarninn hefur verið sá sami frá upphafi. Fara þar í forgrunni þeir Magni Ásgeirsson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Pétur Guðmundsson, Páll Rósinkranz og Biggi Haralds. „Svo má ekki gleyma hljómsveitinni sem er algjörlega geðveik líka,“ segir Bjarni. „Þessir strákar sem við eigum eru svo flottir að þeir eru á á heimsmælikvarða, svo einfalt er það,“ bætir hann við.

Tekin verður tónlist úr ýmsum áttum og nefnir Bjarni sem dæmi lög frá AC/DC, Kiss, Journey, Whitesnake, Gary Moore og Jet Black Joe.

Um er að ræða tvenna tónleika, í Silfurbergi Hörpu 22. mars og í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri 23. mars. Miðasala er hafin á þá báða, á síðum tónleikastaðanna og á midi.is. „Síðast troðfylltum við báða salina og ég vænti þess að þar verði endurtekning á núna,“ segir Bjarni Ólafur.

Tyrkja-Gudda á Facebook.

- trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.