Tónlist

Morrissey aflýsir tónleikum

Veikur Morrissey neyddist til að aflýsa tónleikum vegna veikinda. 
nordicphotos/getty
Veikur Morrissey neyddist til að aflýsa tónleikum vegna veikinda. nordicphotos/getty
Tónlistarmaðurinn Morrissey hefur aflýst tveimur tónleikum sínum vegna veikinda. Morrissey átti að koma fram á tónleikum í Las Vegas hinn 9. febrúar og í Phoenix kvöldið eftir.

Talsmaður söngvarans sagði hann vera með blæðandi magasár og frumubreytingar í vélinda og að hann þyrfti að gangast undir aðgerðir vegna þessa. „Morrissey þakkar aðdáendum sínum fyrir heillaóskirnar og vonast til að ná heilsu sem fyrst,“ sagði talsmaðurinn.

Morrissey sló í gegn með hljómsveitinni The Smiths á níunda áratug síðustu aldar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.