Tónlist

Textinn tekinn úr uppáhaldskvikmyndinni

Grínistinn og útvarpsmaðurinn Daníel Geir Moritz hefur sent frá sér lagið Unnur. Myndbandið við það var unnið upp úr gamanmyndinni Sódóma Reykjavík.

"Þetta er eldgömul hugmynd. Ég held ég hafi beðið Óskar Jónasson [leikstjóra Sódóma] um leyfi til að nota myndina í myndbandið fyrir tveimur árum. Ég er mjög ánægður með að þetta er loksins að koma út. Þetta er mynd sem ég horfði á endalaust sem unglingur. Á fjögurra til fimm ára fresti fæ ég Sódóma-æði og horfi á hana nokkrum sinnum í röð," segir Daníel.

Hann vann lagið Unnur upp úr gömlu pönklagi eftir kunningja sinn, Ívar Gestsson, sem hann flutti í Verslóvælinu. Daníel ákvað að búa til partílag og fékk hljóðmeistarann og kórstjórann Ingvar Alfreðsson til að útsetja það og búa til þokukennt tölvupopp. "Textinn er unninn upp úr eftirminnilegasta atriði myndarinnar þar sem Brjánsi gerir grín að Ella, félaga sínum, um að hann sé of miklu holdi vaxinn til að geta sofið hjá kvenmanni."

Þrír til viðbótar aðstoðuðu Daníel Geir við verkefnið, eða Daði Georgsson, Sturla Már Helgason og Sindri Gretarsson. "Ég stefni á að gera meira í tónlist því mér finnst þetta ferlega gaman. Það er gott að geta brotið uppistandið hjá sér upp með skemmtilegum lögum." - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.