Tónlist

Gréta Karen vinsæl á YouTube

Söngkonan Gréta Karen Grétarsdóttir sendi nýverið frá sér lagið Nothing, sem hún samdi ásamt Daniel Capellaro. Myndband við lagið hefur fengið um 65 þúsund áhorf á vefsíðunni Youtube á aðeins tveimur vikum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins þótti einum úr leikarahópi sjónvarpsþáttanna The Vampire Diaries lagið svo gott að hann birti það á Facebook-síðu sinni.

Gréta Karen á ekki langt að sækja tónlistarhæfileikana því hún er dóttir söngvarans Grétars Örvarssonar og frænka Atla Örvarssonar tónskálds. Hún er búsett í Los Angeles þar sem hún stundaði tónlistarnám við Musicians Institute.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.