Sparkað í dekk á grilli Halldór Halldórsson skrifar 23. maí 2013 08:00 Mér skilst að það sé gjörsamlega dottið úr tísku hjá karlmönnum að eiga flotta bíla. Sjálfsímyndarlega séð fá menn ekkert út úr því lengur. Í dag kaupa menn í ímyndarkrísu sér frekar lítið reiðhjól heldur en stóran jeppa. Sem er kannski ágætt. Nú snýst þetta allt um að eiga geggjuð grill. Cadillac skipt út fyrir Weber, Benz fyrir Landsmann. Stór og kraftmikil grill sem urra þegar maður kveikir undir brennurum. Grill sem þjóta í gang og eru klár að taka við maríneruðum lettum allan sólarhringinn. Menn eru hættir að tala um tommufjöldann í dekkjunum. Hvað þeir eru lengi upp í 100, hvort kertin séu sótuð eða lakkið svo bónað að hægt sé að spegla sig í því. Nú tala þeir bara um að nudda lauk upp við teina, að grilla á lágum en ekki háum hita, hvaða marínering trylli lambið og hvert sé hið rétta hlutfall af Mars súkkulaði í hverjum banana. Mér fannst þessi tíðarandabreyting nokkuð spennandi, þar til ég tók grillið mitt fram í vor. Það kæmist fyrir í einni skjalatösku og kolamagninu gæti maður líklega troðið í vasann. Ég get eiginlega ekki grillað nema þrjár kótelettur í einu og kartöflurnar þarf ég að baka í ofni. Grillið mitt er ígildi þess að eiga hvítan Daihatsu Charade ‘87 módel, þar sem búið er að rífa áklæðið af sætunum og gubba í öskubakkann. Ég öfundaði mennina með stóru grillin þar til ég áttaði mig á því að við erum allir staddir í sama bátnum – á sömu svölunum, með sjóðandi heit grill og stirð bros. Þegar snjórinn lendir getur maður sett nagladekk undir bílinn. En þegar það kemur haglél í maí – er ekkert hægt að gera. P.s.: í vikunni setti ég upp eldhúsinnréttingu og tók 100 kg í bekkpressu í fyrsta skipti. Á hvaða hita ætlarðu að grilla það, apinn þinn? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halldór Halldórsson, Dóri DNA Mest lesið Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson Skoðun Halldór 27.06.2026 Halldór Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson Skoðun