Tónlist

Tileinka sjómönnum plötuna

Freyr Bjarnason skrifar
KK og Maggi Eiríks hafa sent frá sér sjómannaplötuna Úti á sjó.
KK og Maggi Eiríks hafa sent frá sér sjómannaplötuna Úti á sjó. Fréttablaðið/vilhelm

„Engin stétt manna á Íslandi frá landnámstíð hefur fært meiri fórn en sjómenn og fjölskyldur þeirra. Enda er platan tileinkuð þeim,“ segir KK um nýjustu plötu sína og Magga Eiríks, Úti á sjó. Hún hefur að geyma sjómannalög frá seinni hluta síðustu aldar.

„Vinur okkar Magga, sem er skipstjóri á togara í Vestmannaeyjum, hringdi í mig og spurði: „Kristján, af hverju gefið þið Maggi ekki út plötu með sjómannalögum?“ Magga leist bara vel á þetta og við ákváðum að fara í hljóðver,“ segir KK. Hann er sjálfur strandveiðimaður og á litla trillu sem heitir Æðruleysi.

„Margir eldri Íslendingar hafa verið eitthvað til sjós. Maggi var til sjós í gamla daga og feður okkar voru sjómenn. Sjómennskan var það sem allt snerist um hér áður fyrr, og gerir mikið enn þá.“

KK og Maggi hafa gefið út þrjár vinsælar ferðalagaplötur. Spurður hvort fleiri sjómannaplötur séu á leiðinni hlær hann og segist ekki búast við því enda séu þeir Maggi að undirbúa plötu með eigin efni.

Þeir félagar spila á tónleikunum Óskalögum sjómanna í Hörpu á laugardag. „Ef ég á frí á sjómannadaginn ætla ég að setja fánann upp og sigla út á hafið. Það yrði rosalega gaman,“ segir KK.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.