Tónlist

Óvissa með framtíð Goðafoss

Freyr Bjarnason skrifar
Óvíst er hvenær fyrstu tónleikar ofurgrúppunnar goðafoss verða haldnir.
Óvíst er hvenær fyrstu tónleikar ofurgrúppunnar goðafoss verða haldnir. mynd/alma geirdal
Óvíst er hvenær fyrstu tónleikar nýstofnuðu ofurgrúppunnar Goðafoss verða eftir að tónleikum Deep Purple í Laugardalshöll var aflýst á dögunum.



Goðafoss, sem er skipuð fyrrum meðlimum Trúbrots, Mána, Náttúru og Pelican, átti að hita upp fyrir rokkhundana í Deep Purple 12. júlí en ekkert verður af því.

„Þetta er svekkjandi fyrir okkur að því leytinu að við fengum geysimikil viðbrögð við okkar áformum um að spila þarna og koma saman. En það þýðir ekkert að við séum hættir með hugmyndina. Þessu verður haldið á lágstraumi þangað til við finnum rétta tækifærið,“ segir forsprakkinn Magnús Kjartansson aðspurður. „Það er ekki á allt kosið. Það stutt síðan Deep Purple kom síðast til Íslands og kannski voru þeir búnir að yfirkeyra þennan markað.“



Eurovision-farinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson átti einnig að hita upp fyrir Deep Purple. Hann hlakkaði sömuleiðis mikið til tónleikanna, enda hefur hann starfrækt Deep Purple-heiðurshljómsveit, auk þess sem hann vann Söngkeppni framhaldsskólanna með því að syngja lag Deep Purple, Perfect Strangers.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.