Tónlist

Fimmtíu til Íslands með Frank Ocean

Freyr Bjarnason skrifar
Hópur fólks verður með Frank Ocean á Íslandi.
Hópur fólks verður með Frank Ocean á Íslandi. nordicphotos/getty
Hátt í fimmtíu manna hópur fylgir bandaríska tónlistarmanninum Frank Ocean til Íslands en hann kemur fram í Laugardalshöllinni 16. júlí.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verður hópurinn hér á landi í þrjá daga og verður sá tími meðal annars notaður til að koma upp ýmsum græjum, þar á meðal ljósum og myndvörpum fyrir tónleikana. 

Búast má við miklu sjónarspili í Höllinni í bland við tónlist Ocean, sem er tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi og einn heitasti tónlistarmaðurinn í dag. Enn eru til örfáir miðar á tónleikana í stæði og í stúku. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.