Tónlist

Samstarfið með Friðriki Dór gekk vel

Sara McMahon skrifar
Friðrik Dór syngur lagið Glaðasti hundur í heimi sem er á nýjustu barnaplötu Gunnars Hjálmarssonar, Alheimurinn!
Friðrik Dór syngur lagið Glaðasti hundur í heimi sem er á nýjustu barnaplötu Gunnars Hjálmarssonar, Alheimurinn! Fréttablaðið/Valli
„Samstarfið gekk mjög vel. Hann þurfti náttúrulega að leggja land undir fót og kom til Keflavíkur í stúdíóið, það er alltaf létt yfir mönnum þegar þeir eru komnir út á land,“ segir tónlistarmaðurinn Gunnar Hjálmarsson um samstarf sitt og söngvarans Friðriks Dórs Jónssonar.

Sá síðarnefndi syngur lagið Glaðasti hundur í heimi af barnaplötunni Alheimurinn! Platan er önnur barnaplata Gunnars, eða Dr. Gunna eins og hann er betur þekktur, en sú fyrri, Abbabbabb, kom út árið 1997.

Á plötunni eru fjórtán lög sem Dr. Gunni samdi í samstarfi við tónlistarkonuna Ragnheiði Eiríksdóttur. Sex laganna eru sungin af gestasöngvurum en þegar Dr. Gunni er spurður nánar út í þá vill hann lítið láta uppi.

„Það er enn þá leyndarmál. Ég get sagt þér að eitt lag er sungið af þremur stórstirnum sem aldrei hafa sungið saman áður, annað er sungið af manni sem er mjög vinsæll og enn annað er sungið af söngkonu í mjög vinsælli hljómsveit.“

Glaðasti hundur í heimi verður frumfluttur í útvarpi í dag en einnig má nálgast lagið á Spotify, Tónlist.is og Youtube.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.