Tónlist

Ný stuttskífa frá Kimono

Sara McMahon skrifar
Kimono gefur út stuttskífuna Aquarium í dag. Sveitin kemur svo fram á tónleikum annað kvöld.
Kimono gefur út stuttskífuna Aquarium í dag. Sveitin kemur svo fram á tónleikum annað kvöld. Mynd/valdís Thor
Hljómsveitin Kimono gefur út stuttskífuna Aquarium í dag og spilar á útgáfutónleikum á Faktorý annað kvöld. Sveitin hyggst jafnframt nýta tækifærið til að kveðja tónleikastaðinn sem rennur brátt sitt skeið.

Nýja stuttskífan inniheldur tuttugu mínútna langt lag sem er afrakstur áframhaldandi vinnu tríósins með hið lifandi upptökuform sem heyra mátti á síðustu plötu þeirra, Easy Music for Difficult People.

„Þetta gerist bara stundum. Við höfum alltaf troðið mikið af hugmyndum inn í hvert lag og þarna gleymdum við okkur og fórum langt yfir strikið,“ segir Gylfi Blöndal, gítar- og bassaleikari, þegar hann er spurður út í lengd lagsins. Hann segir enn óákveðið hvort lagið verði spilað á tónleikunum annað kvöld. „Við erum að velta þessu fyrir okkur. Það gæti þó vel verið að við tökum það í einhverri mynd á tónleikunum.“

Fólki gefst kostur á að streyma stuttskífuna á Soundcloud og Youtube í dag eða kaupa hana til niðurhals á Bandcamp. Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 22 á Faktorý annað kvöld og er aðgangseyrir 1500 krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.