Tónlist

Spila bestu lög Dire Straits í Hörpu

Freyr Bjarnason skrifar
„Þetta verða frábærir tónleikar,“ segir tónleikahaldarinn Guðbjartur Finnbjörnsson. Hljómsveitin The Straits, sem er skipuð tveimur fyrrverandi meðlimum hinnar heimsfrægu Dire Straits, spilar í Eldborgarsal Hörpu 25. nóvember.

Í hljómsveitinni eru Alan Clark, fyrrverandi hljómborðsleikari Dire Straits, og saxófónleikarinn Chris White, sem spilaði með sveitinni á tónleikum í tíu ár. Terence Reis stendur vaktina í staðinn fyrir söngvarann og gítarleikarann Mark Knopfler, sem lagði hljómsveitina niður árið 1995 og ákvað að einbeita sér að sólóferli sínum.

„Rödd stráksins er ótrúlega lík rödd Marks Knopfler, þú heyrir varla mun,“ segir Guðbjartur.

Einnig eru í The Straits þeir Steve Ferrone, sem hefur spilað með Tom Petty, Mickey Féat, Adam Philips og Jamie Squire. Saman flytja þeir öll bestu lög Dire Straits á borð við Sultans of Swing, Romeo and Juliet, Brothers in Arms og Money For Nothing.

The Straits spilaði fyrst opinberlega í Royal Albert Hall í London fyrir um tveimur árum. „Ég er búinn að kíkja á umsagnir fólks á hljómleikum sem þeir hafa verið að halda og fólk bara tárast yfir því hvað þetta er flott hjá þeim,“ segir Guðbjartur.

Miðasala á tónleikana hefst á miðvikudaginn í næstu viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.