Tónlist

Rocky sló áhorfanda utan undir

Kona sem var í hópi áhorfenda á tónleikum rapparans A$AP Rocky hefur kært hann fyrir að hafa slegið sig utan undir.
Kona sem var í hópi áhorfenda á tónleikum rapparans A$AP Rocky hefur kært hann fyrir að hafa slegið sig utan undir. nordicphotos/getty
Rapparinn A$AP Rocky hefur verið ákærður fyrir að slá kvenkynsaðdáanda ítrekað utan undir.

Konan var í hópi áhorfenda á tónlistarhátíðinni Made in America í Fíladelfíu í Bandaríkjunum, þar sem Rocky kom fram.

Konan heldur því fram að hann hafi slegið sig í framan þegar hann labbaði í gegnum áhorfendaþvöguna og að hún hafi orðið mjög rauð í framan.

Rocky undirbýr sig þessa stundina undir útgáfu nýrrar plötu sem er væntanleg í verslanir 15. október næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.