Allt í einni töflu 17. september 2013 17:00 Arnar Grant og Ívar Guðmundsson með fjölvítamín fyrir konur og karla.
Líkamsræktarfrömuðirnir Arnar Grant og Ívar Guðmundsson hafa sett á markað fjölvítamínin Allt í einni. Tegundirnar eru tvær, önnur hentar konum og hin körlum.Af hverju þarf sértöflur fyrir karla og konur? „Í stuttu máli er aukajárn í vítamíninu fyrir konur en ekki í karla-útgáfunni. Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að konur tapa reglulega mun meira af járni úr líkamanum en karlmenn þar sem þær fara á blæðingar en ekki karlar,“ svarar Arnar og bætir við að ófrískar konur og konur með barn á brjósti hafi auk þess öllu meiri fjörefnaþörf en karlar og því henti þeim að fá aukalegan skammt af kalki, járni og fólati sem einmitt sé að finna í fjölvítamíninu „Allt í einni“ fyrir konur. „Það er því ákveðin ástæða fyrir því að vítamínin okkar eru hönnuð og úthugsuð eftir þörf hvors kyns fyrir sig,“ segir Ívar. Hann bendir þó á að sameiginlegur grunnur vítamínanna sé æði líkur. „Báðar tegundir eru með ríflegum ráðlögðum dagskammti af D-vítamíni. Þá þurfa karlar auðvitað líka kalk, eins og gefur að skilja, enda mikilvægt steinefni fyrir líkamann,“ segir Ívar. Helsti kalkgjafi Íslendinga er mjólk en þeir félagar segja orðið algengt að fólk drekki litla sem enga mjólk. „En inntaka kalks er öllum mikilvæg og þar kemur vítamínið okkar í góðar þarfir,“ segja þeir.En af hverju að taka vítamín? „Vitað er að vítamínsskortur getur skert starfshæfni líkamans verulega og auk þess getur hann haft töluverð áhrif á andlega líðan. Mönnum verður þó ekki ljóst að líkamann skortir vítamín fyrr en á reynir. Sá skortur getur lýst sér sem allt frá smávægilegum truflunum á líkamsstarfsemi til alvarlegra líkamlegra einkenna,“ segir Arnar og bendir á að vítamínskortur geti einnig valdið þunglyndi og magnað kvíða. „Það að taka eina fjölvítamíntöflu á dag stuðlar því að því að maður sé fær í flestan sjó og í standi til að takast á við daginn. Við höfum sem sagt reynt að hugsa fyrir öllu, hugsað fyrir vellíðan þinni, þó hér sé bara stiklað á stóru,“ segir hann. Allt í einni er sem sagt til í tveimur útgáfum en þær eru í grunnatriðum líkar. „Hjón geta síðan fylgst betur með vítamíntöku hvort annars, sem kemur best í ljós þegar annar aðilinn klárar úr boxi sínu en ekki hinn. Við mælumst til þess að bæði karlar og konur taki fjölvítamínin sín reglulega og verði hraust og heilbrigð,“ segir Ívar og bætir við með áherslu: „Og munið: Best er að taka vítamínin með stærstu máltíð dagsins. Þannig nýtast fjörefnin líkamanum sem allra best.“Smá fróðleikur um D-vítamín Allt of marga Íslendinga skortir D-vítamín og ná ekki nægjanlegum dagskammti þess svo mánuðum skiptir. D-vítamín er meðal annars mikilvægt líkamanum til að nýta kalk svo að viðhald og uppbygging tanna og beina sé eðlilegt. Skortur á D-vítamíni getur til dæmis leitt til þess að börn fái beinkröm sem lýsir sér þannig að beinin verða lin og barnið hjólbeinótt eða kiðfætt. Fullorðnir sem þjást af D-vítamínsskorti fá beinþynningu sem þýðir að beinin verða kalklítil og brothætt. Oft finnur fólk fyrir þessu í baki, mjöðmum og fótleggjum. D-vítamín er hægt að fá úr sólarljósi. Sólin þarf að skína á líkamann í u.þ.b. tvo klukkutíma á dag svo líkaminn myndi ráðlagðan dagskammt af D-vítamíni. Það er því augljóst hér á norðurslóðum að öllum Íslendingum er alveg sérstaklega hollt að taka inn D-vítamín frá septembermánuði og fram í maí. Eftir sólarlítið sumar eins og við fengum í ár mælum við sérstaklega með háum D-vítamínskömmtum daglega. Þeir sem eru mikið inni við eins og aldraðir og ungabörn ættu líka alltaf að taka D-vítamín í fæðubótarformi. Það kemur í veg fyrir sjúkdóma og eykur hreysti þeirra. En D-vítamín er ekki bara í sól, það er auðvitað líka að finna í feitum fiski og eggjarauðu. Nánari upplýsingar um vítamínið má finna hér.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira