Tónlist

Annarri breiðskífu fagnað

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hljómsveitin 1860 heldur útgáfutónleika á fimmtudaginn.
Hljómsveitin 1860 heldur útgáfutónleika á fimmtudaginn. MYND/ÞORMAR VIGNIR GUNNARSSON
Hljómsveitin 1860 sendi nýlega frá sér sína aðra breiðskífu sem ber nafnið Artificial Daylight. Platan inniheldur meðal annars lagið Íðilfagur sem hefur fengið að hljóma títt á flestum útvarpsstöðvum landsins.



Í tilefni útgáfunnar verður hljómsveitin með veglega tónleika á fimmtudagskvöld í Iðnó. Tónlistarmaðurinn Smári Tarfur hitar upp en húsið verður opnað klukkan 21. Forsala miða er hafin á Midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.